Síðasta þriðjudagsferð sumarsins
Frá byrjun maí hefur Fjallahjólaklúbburinn boðið upp á léttar og skemmtilegar hjólaferðir á hverjum þriðjudegi líkt og við höfum gert í yfir áratug. Við hjólum saman, ýmist eftir stígum, hjólabrautum eða samnýtum rólegar hverfisgötur með öðrum farartækjum, lærum að þekkja stígakerfið, kynnumst þeim fjölmörgu hjólabrautum sem hafa verið lagðir á undanförnum árum og gert hjólreiðafólki auðveldara að fara um höfuðborgarsvæðið með öruggum hætti.